Framhald af verkefni 2.
Bæta skal við:
- 500 gervigögnum í byrjun
- „Síðum“ þegar undirskriftir eru skoðaðar
- Innskráningarkerfi
- Möguleika á að eyða færslum ef viðkomandi er innskráður notandi
Verkefni skal sett upp á öðru Heroku appi.
Gefinn er grunnur, byggður á sýnilausn. Ekki er krafa um að nota hann.
Nota skal faker
til að útbúa a.m.k. 500 gerviskráningar á listann:
- Nafn með
faker.name.findName()
- Sérútfærsla á kennitölu sem nýtir
Math.random()
- Athugasemd með 50% líkum með
faker.lorem.sentence()
- 50% líkum á að vera nafnlaust
- Undirskrift hafi verið bætt við á seinustu tveim vikum
Þar sem mikið af gögnum er nú komið í gagnagrunninn okkar þurfum við síðuflettingu. Hver „síða“ skal vera 50 færslur. Fyrir neðan töflu skal birta flettingu, þar sem:
- Hægt er að fara til baka ef maður er ekki á fyrstu síðu
- Hægt er að fara á næstu síðu ef síða sem viðkomandi er á er með 50 skráningum
- Birt er á hvaða síðu viðkomandi er og heildarfjölda
Einnig skal birta fyrir ofan töflu heildarfjölda færsla, hægt er að telja með SELECT COUNT(*) AS count FROM signatures;
Útfæra skal innskráningarkerfi með passport
og passport-local
. Ekki þarf að setja upp nýskráningu en nota skal töflu í postgres grunni til að geyma notendanafn og lykilorð. Lykilorð skal vista með bcrypt
.
Ef farið er á /admin
skal birta innsrkáningarsíðu sem birtir villuskilaboð ef innsrkáning gengur ekki upp. Ef innskráning gengur upp skal birta:
- að viðkomandi sé skráður inn og möguleika á að skrá sig út
- lista af færslum með möguleika á að eyða færslum
Ef notandi er innskráður skal birta nýjan dálk í lista með takka sem leyfir að eyða færslunni.
Athuga þarf hvort notandi sé virkilega innskráður þegar það er reynt, annars redirect á login síðu.
Ef færslu er eytt skal redirecta á forsíðu bakvinnslu.
Ef villa kemur upp skal sýna villusíðu.
Sama gildir og í verkefni 2 með tæki og tól, nema þegar npm run setup
er keyrt skulu gervigögn búin til.
- 10% – Snyrtilegur kóði, engar villur þegar npm test er keyrt
- 10% – Verkefni sett upp á Heroku
- 20% – Gervigögn búin til og sett í töflu
- 20% – Síðuflettingar og upplýsingar um síður
- 20% – Innskráningarkerfi útfært og sjálfgefinn notandi
- 20% – Eyðsla á færslum ef innskráður notandi
Verkefni sett fyrir á Canvas sunnudaginn 14. febrúar 2021.
Skila skal í Canvas í seinasta lagi fyrir lok dags laugardaginn 27. febrúar 2021.
Skilaboð skulu innihalda slóð á Heroku og slóð á GitHub repo fyrir verkefni, og dæmatímakennurum skal hafa verið boðið í repo (sjá leiðbeiningar). Notendanöfn þeirra eru:
jonnigs
mimiqkz
Steinalicious
zurgur
Hver dagur eftir skil dregur verkefni niður um 10%, allt að 20% ef skilað mánudaginn 1. mars 2021 en þá lokar fyrir skil.
Sett verða fyrir 6 minni verkefni þar sem 5 bestu gilda 8% hvert, samtals 40% af lokaeinkunn.
Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 10%, samtals 20% af lokaeinkunn.
Útgáfa 0.1