Skrifa skal CSS til að láta gefið HTML líta út eins og gefin fyrirmynd (fyrirmynd.png
).
Ekki er leyfilegt að breyta HTML skjali nema til þess að tengja CSS við það, þ.e.a.s. ekki má breyta því sem er innan <body>
.
Grunnstærð leturs skal vera 18px
og aðeins skal nota em
einingar fyrir stærðir fyrir utan:
- Skilgreiningu á grunnstærð
- Þykkt á
border
Útlit þarf aðeins að vera rétt í a.m.k. 800px breiðum Chrome vafra.
h1
fyrirsögn skal aðeins hafa margin að neðan og skal það vera 36px
. Leturstærð fyrirsagnar skal vera 36px
. Fyrir neðan fyrirsögn skal vera 1px
breið línu með litinn #999
.
h2
fyrirsagnir skulu ekki hafa neitt margin. Leturstærð fyrirsagna skal vera 30px
. Litur fyrirsagna skal vera #999
.
Ekki skal birta h2
fyrirsögn undir .card-section
.
h3
fyrirsagnir skulu ekki hafa neitt margin. Leturstærð fyrirsagna skal vera 18px
.
Takkar skulu hafa 5px
border. Efri og hægri partur skulu hafa litinn #999
en neðri og vinstri #666
.
Letur stærð takka skal vera 18px
.
Þegar hoverað er yfir takka skal breidd stækka úr 5px
í 10px
litir skiptast, þ.e.a.s., efri og hægri partur skulu hafa litinn #666
en neðri og vinstri #999
.
Fyrsta textablokk:
- Letur stærð
18px
- Margin vinstra megin
0px
- Fyrsta lína skal vera með bakgrunnslit
#ccc
- Fyrsti stafur skal vera
36px
Önnur textablokk:
- Letur stærð
16px
- Margin vinstra megin
50px
- Fyrsta lína skal vera með bakgrunnslit
#ddd
- Fyrsti stafur skal vera
36px
Þriðja textablokk:
- Letur stærð
14px
- Margin vinstra megin
100px
- Fyrsta lína skal vera með bakgrunnslit
#eee
- Fyrsti stafur skal vera
36px
Kort (eða „cards“) eru oft notuð í hönnun á vefnum. Þau aðskilja efni á einhvern hátt og eru oft birt saman í listum.
Fyrir okkar kort gildir:
- Innan
.cards
element eiga kort að raðast inline, þ.e.a.s. vera hlið við hlið - Breidd og hæð þeirra eiga að vera
180px
- Margin og padding eiga að vera
9px
á allar hliðar 1px
svart border á að vera utanum þau- Oddatölu kort hafa
#fff
bakgrunn og#333
litaðann texta - Jafntölu kort hafa
#333
bakgrunn og#fff
texta
Fyrir .cards
element gildir:
- Þegar mús fer yfir element eiga bakgrunnar og litir korta að víxlast, sjá
hover.gif
- Má mest verða
666px
breitt - Miðja á element á síðu
- Takki innan elements skal hafa
36px
margin að ofan og neðan - Bæta skal við texta eftir takka sem segir „Ekki meira efni“, með
18px
margin að ofan og neðan,1px
border með#c00
lit, og18px
padding að ofan
Aðeins er leyfilegt að nota eftirfarandi yfirlýsingar í CSS:
background-color
border
ogborder-top
o.fl.color
content
display
font-size
height
margin
ogmargin-top
o.fl.max-width
padding
ogpadding-top
o.fl.width
Leyfilegt er að nota alla selectora.
CSS skal vera án villna og viðvarana þegar keyrt í gegnum https://jigsaw.w3.org/css-validator/
- 20% – Snyrtilega uppsett og gilt CSS tengt við HTML
- 20% – Aðeins leyfileg eigindi notuð og
em
notað fyrir stærðir - 20% – Útlit á fyrirsögnum og tökkum rétt
- 20% – Útlit á texta rétt
- 20% – Útlit á kortum rétt
Verkefni sett fyrir í fyrirlestri mánudaginn 10. september 2018.
Skila skal undir „Verkefni og hlutaprófa“ á Uglu í seinasta lagi fyrir lok dags þriðjudaginn 18. september 2018.
Skilaboð skulu innihalda slóð á verkefni ásamt zip skjali með lausn sem heitir ``verkefni3-.zip, t.d.
verkefni3-osk.zip`.
Sett verða fyrir tíu minni verkefni þar sem átta bestu gilda 3,5% hvert, samtals 28% af lokaeinkunn.
Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 11%, samtals 22% af lokaeinkunn.
Útgáfa 0.2
Útgáfa | Lýsing |
---|---|
0.1 | Fyrsta útgáfa |
0.2 | Laga fyrirmynd.png , sýndi vitlaust bil fyrir neðan „Ekki meira efni“ |