Halda skal áfram með kort úr verkefni 5 að viðbættum texta og gera skal allt saman skalanlegt.
Gefin er index.html
skrá sem ekki skal eiga við fyrir utan að bæta skal við class
við element þar sem þarf. Heiti þessara klasa skulu fylgja BEM. Einnig skal bæta við því sem þarf til að skalanleiki virki sem skildi.
Fyrir útlit gildir:
- Open sans er uppsett og skal nota fyrir allan texta
- Gefin er breidd á
<main>
og bakgrunnslitur á.cards
til að bera saman við fyrirmynd - Nota skal grind:
- Hámarksstærð
1450px
- 12 dálkar
20px
gutter
- Hámarksstærð
grid.css
skal notað til að láta efni falla rétt að grind, sjá fyrirmyndir- Fyrir
.card
gildir það sama og í verkefni 5
Fyrir efni utan .cards
er .grid
notað utan um efni. Fyrir bæði .cards
og .grid
ætti að bæta við klasanöfnum fyrir rows og cols til að láta grind ganga upp. Sjá vísun að grind fyrir .grid
sem gefin er.
Notast skal við fyrirmyndir til að sjá cirka hvernig skölun virkar.
Í grunninn skal nýta mobile-first, þ.e.a.s. allir stílar áður en media queries eru notaðar skulu miða við < 700px
brotpunkt.
Fyrir brotpunkta gildir:
< 700px
- Dálkar í
.grid
eru100%
- Dálkar í
.cards
eru100%
- Útlit á
.card
er breytt frá v5, sjá að neðan
- Dálkar í
>= 700px
- Dálkar í
.cards
fara frá því að vera100%
í að vera50%
.cards
fær40px
margin að neðan- Útlit á
.card
fer í útlit úr v5, sjá að neðan
- Dálkar í
>= 1000px
- Dálkar í
.grid
fara frá því að vera100%
í að vera50%
og fá40px
margin að neðan - Dálkar í
.cards
fara frá því að vera50%
í að vera33.33333...%
- Dálkar í
>= 1490px
, padding er tekið afmain
vegna grid, ekki þarf að láta brotpunkt vera fullkominn (þ.e.a.s. að ekkert hopp komi til)
Upp að 700px
breiðum skjá er útlit .card
öðruvísi til að passa betur í minni skjá:
- Ekki skal takmarka breidd (width) eða hæð (height)
- Ekki skal hafa rúnaðan border allt í kring heldur aðeins
2px solid #aaa
border að neðan 20px
bil skal vera neðst í hverju- Efni skal ekki liggja í röð heldur í dálk (sjá fyrirmynd)
- Texti skal hafa
20px
margin að neðan - Mynd skal ekki hafa bil til vinstri
- Texti skal hafa
Mælst er til að nota grunn úr verkefni 5 (sýnilausn verður gefin út við lok dags 3. október) og ætti þá að nota max-width
media query, setja breytingar á upp að max-width: 699px
. Í sýnilausn fyrir v5 eru stílar nákvæmlega þeir sömu nema height: 100%
er aukalega sett á .card
vegna þess hvernig grind færir .card
frá því að vera systkini í að dálkar séu systkini og hvernig þá stretch
hagar sér í flexbox.
Til þess að ekki séu tvær myndir hlið við hlið í minnstu upplausn er átt við röðun á mynd í öðru barni fyrsta .grid
. Það á aðeins við í < 1000px
.
Leyfilegt er að nota þær CSS yfirlýsingar sem farið hefur verið yfir og þær sem bæta þarf við til að uppfylla verkefnalýsingu.
Einungis skal notast við flexbox til að stýra útliti og eru því eftirfarandi yfirlýsingar ekki leyfðar:
display
með annað gildi enflex
, sjálfgefin gildi eru þó leyfðfloat
position
Fyrirmyndir eru gefnar í 1500px
, 800px
og 500px
breiðum skjám með og án grid.
- 20% – Snyrtilega uppsett, merkingarfræðilegt og gilt HTML sem notar BEM fyrir klasanöfn
- 20% – Snyrtilega uppsett, gilt CSS sem virðir takmarkanir
- 10% – Útlit útfært eftir forskrift
- 50% – Skalanleiki útfærður eftir forskrift
Verkefni sett fyrir í fyrirlestri mánudaginn 1. október 2018.
Skila skal undir „Verkefni og hlutaprófa“ á Uglu í seinasta lagi fyrir lok dags þriðjudaginn 8. október 2018.
Skilaboð skulu innihalda slóð á GitHub repo fyrir verkefni, og dæmatímakennurum skal hafa verið boðið í repo (sjá leiðbeiningar). Notendanöfn þeirra eru arnar44
, mimiqkz
, gorri4
, hinriksnaer
, gunkol
, freyrdanielsson
, osk
.
Sett verða fyrir tíu minni verkefni þar sem átta bestu gilda 3,5% hvert, samtals 28% af lokaeinkunn.
Sett verða fyrir tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 11%, samtals 22% af lokaeinkunn.
Útgáfa 0.1