Verkefnið snýst um að setja upp Next.js framenda fyrir headless CMS kerfi.
- Uppsetning og notkun á Next.js.
- Notkun á headless CMS kerfi eða álíka.
- Hýsing með Vercel.
Verkefnið er viljandi opið og ekki mikið skilgreint. Það er í lagi að einhver skörun sé við einstaklingsverkefni.
Setja skal upp Next.js verkefni sem notar:
- TypeScript.
- App router.
- Sass fyrir CSS.
Setja skal upp headless CMS kerfi eða álíka, t.d.:
Uppfylla þarf eftirfarandi kröfur:
- Forsíða með efni sem hægt er að breyta í kerfinu.
- Síða með lista af efni sem hægt er að breyta í kerfinu, t.d. frétta– eða greinalisti.
- Stakar síður með efni sem hægt er að breyta í kerfinu, t.d. stök frétt eða grein.
Æskilegt er að finna kennsluefni (tutorial) fyrir valið kerfi og fylgja því að einhverju leiti. T.d. er mikið af dæmum á Next.js GitHub.
Útbúa skal einfalt viðmót sem uppfyllir kröfur um virkni.
Setja skal upp vefinn á Vercel gegnum GitHub.
- 40% — Next.js uppsetning með TypeScript, app router og Sass.
- 40% — Headless CMS kerfi notað og uppfyllir kröfur.
- 10% — Viðmót.
- 10% — GitHub og Hýsing.
Verkefni sett fyrir í fyrirlestri miðvikudaginn 20. mars 2024.
Skila skal í Canvas í seinasta lagi fyrir lok dags fimmtudaginn 11. apríl 2024.
Skil skulu innihalda:
- Slóð á verkefni keyrandi í hýsingu.
- Slóð á GitHub repo fyrir verkefni. Dæmatímakennurum skal hafa verið boðið í repo. Notendanöfn þeirra eru:
osk
polarparsnip
sturla-freyr
Leyfilegt er að ræða, og vinna saman að verkefni en skrifið ykkar eigin lausn. Ef tvær eða fleiri lausnir eru mjög líkar þarf að færa rök fyrir því, annars munu allir hlutaðeigandi hugsanlega fá 0 fyrir verkefnið.
Ef stórt mállíkan (LLM, „gervigreind“, t.d. ChatGTP) er notað til að skrifa part af lausn skal taka það fram. Sjá nánar á upplýsingasíða um gervigreind hjá HÍ.
Sett verða fyrir (sjá nánar í kynningu á áfanga):
- fimm minni sem gilda 10% hvert, samtals 50% af lokaeinkunn.
- tvö hópverkefni þar sem hvort um sig gildir 20%, samtals 40% af lokaeinkunn.
- einstaklingsverkefni sem gildir 10–20% af lokaeinkunn.
Útgáfa 0.1
Útgáfa | Breyting |
---|---|
0.1 | Fyrsta útgáfa |